Það sem á daga okkar hefur drifið.

Við fórum í skólann hennar karólínu á miðvikudag. Hittum skólastjórann, spjölluðum heillengi við hann og úr varð að Karólína máti koma morguninn eftir, fimtudagsmorgun. "Spennann var gífurleg og ég varð ær" eins og segir í laginu. Það þurfti nátúrulega að baða þá stuttu og greiða henni. Ég var svo heppinn að sjá hvernig ætti að gera fastafléttDSC00007u áður enn ég lagði af stað hingað suðreftir. Nú var kominn tími á að prufa sjálfur og getur hver dæmt um árangurinn fyrir sig. Skólinn gékk vel fyrir sig. Við hittum Gitte en hún er kennarinn hennar Karólínu. Verulega viðkunnaleg kona. Lína var svo dugleg að ég fór og skildi hanna eftir í fullri kennslustofu af fólki sem talaði ekki íslensku og hún ekki dönsku.

FallbyssannSvo við höfninaum eitt leitið sótti ég hana og við fórum í svaka göngutúr. Skoðuðum kastalann, smábátahofnina, ströndina, smábátahofnina, vindmyllu, og margt fleirra. Tíndum skeljar og gerðum margt annað skemtilegt. Í einum garðinum sáum við kanínur tvær á vappi en náðum ekki að komast nálægt þeim. Svo þegar við vorum á heimleið........ þá kom Bambi. Tveir Bambar komu þjótandi útúr skóginum, yfir götuna og inn í skóginn hinumegin. Það var svaka fjör.
þegar dagur var að kveldi kominn var ekki erfit að sofna enda mikið búið að ske og annar spennandi dagur á morgunn því þá byrjum við karólína í dönskukenslu fyrir útlendinga. Sennilega verður hún á undann mér að ná tungumálinu. Gerum  úr þessu keppni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæsileg flétta!!!! Þú massar þetta bróðir. Ég held ég verði að veðja á að Karólína toppi þig fljótt í dönskunni, set mína peninga á hana ;o)

Inga syss (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 10:55

2 identicon

Þú ferð að flétta allan hringinn bráðum með þessu áframhaldi. Greinilega gaman í Danmörku. Hafið það gott.

Ingibjörg J (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 13:50

3 identicon

Sæll surtur!!

Kári hérna frændi Birnu fann þig í gegnum bloggið hennar. Gaman að sjá að þú ert kominn til danmerkur og ert að fíla þig. Vonandi mun ykkur ganga vel þarna í danmörku og ég sé ykkur þegar ég kem.

ROCK ON!!

Kári (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 21:01

4 identicon

Hæ Gímsi ... flott flétta hjá þér ... og greinilegir hæfileikar í ljósmyndun líka enda er módelið ekki af verri endanum;)  Flottar myndir og flott stelpa sem þú átt.  Hafið það gott ...

Gulla sys (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurgrímur Jónsson

Höfundur

Sigurgrímur Jónsson
Sigurgrímur Jónsson

Vísindamaður með krullað hár.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DSC00147
  • DSC00149
  • DSC00150
  • DSC00148
  • DSC00145

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 510

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband