16.8.2008 | 20:18
Laugardagurinn fyrsti
Jæja þá er enn einn dagur að kveldi kominn. Hann byrjuðum við á því að fara í þvottadjobbið og skúruðum af okkur larfana. því næst reikuðum viðrí bæ, fengum okkur ís og Carlsber. Skindilega hringdi síminn. Það var Kristín hjá íslendingafélaginu að láta mig vita að það væri hittingur á Loftinu, félagsheimili íslendingafélagsins, í tilefni af leik Íslendinga og Dana á ólimpíuleikunum. þar sem við lína vorum í nágrenninu skeltum við okkur. Hún lék sér í garðinum með öðrum krökkum meðan við hin fullorðnu horfðum á leikin og skáluðum í öðrum Carlsberg. Eftir að Danir höfðu marið framm jafntefli og lína svitnað á við fjölbragðaglímukappa í sólinni úti röltum við heim í kvöldmat. Klukkann orðin rúmlega sex, heiðskírt úti og rúmlega tuttugu stiga hiti úti. Ég hafði séð auglisyngar um strandparty svo við Karólína ákváðum að skella okkur á ströndina, ekki nema kortersgangur frá okkur þótt við séum inní miðjum bæ. Glampandi sól, apelsínusafi og strönd. Hvað gæti verið betra. Þetta gerir maður ekki á íslandi skal ég seigja þér. Við hittum Birnu og strákana og krakkaskarinn skellti sér í sjóinn að veiða marglitur. Þarna hittum við líka fleyrri íslendina sem voru á leiknum fyrr um daginn. Strax farin að hitta fólk á förnum vegi þetta er ekki stærri borg en það( í gær hitti ég td konu í búð sem ég talaði við í lestinni á leiðinni hingað og mömmu hans Atla félaga míns). Eftir hamagang í sjónum röltum við lína svo sem leið lá heimáleið og er óþafri að segja að hún sofnaði um leið og höfuðið snerti koddann. Ég frétti af því að íslendingafélagið er með fótboltalið sem æfir tvisvar í viku og ætla ég að skella mér næst. það er á mánudaginn. Stutt að fara því það æfit hinumegin við götuna sem við Karólína komum til með að búa í. En gott í bili. farinn af sofa. Ætli það verði ekki bara fleirri æfintýri á morgun.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sigurgrímur Jónsson
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já og takk fyrir að hringja í mig þrisvar sinnum í mig til að minna mig á hvað ég er að missa af.
Hvernig gerðist það eiginlega að ég bókaði mig síðastur út í þetta geim........
Mun hér eftir ekki ansa þér fyrr en tuttugastaogfimmta.......
Eybjór (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.