22.9.2008 | 19:45
Annarverkefnið í skólanum.
Við erum búin að fá svokallað Annarverkefni en það er eitt stórt verkefni sem við verðum að vinna í alla önnina og metið í lok hennar. Í byrjun kunnum við ekkert af því sem við eigum að gera en er kennt það í takt við framvindu verkefnisins. Þetta árið er briddað uppá nýúng hér í SDU og verkefnið allt öðruvísi en undanfarin ár. Fyrst áttum við að velja okkur tónlist, skilgreina hana svo ( tilfiningu hennar, lögun, liti, áferð og efni). Því næst áttum við að gera einhverja hluti sem höfðu þessi einkenni sem okkur fanst tónlistin hafa. Næst eigum við að smíða sjálvirkann hlut sem hreifir sig í líkingu við tilfiningu tólistarinnar og nota fyrgreind atriði til þess að tengja hlutinn við tónlistina. Minn hópur sem samanstendur af mér, Guðmundi Íslendingi og Ilonu Pólverja valdi lagið DeSonne með hljómsveitinni Rammstein. Nei, það var ekki mín hugmynd, Ilona valdi lagið. þetta verkefni fellur mjög vel að mér þar sem ég er nátla tónlystarmaur framm í fingurgóma. hér eru svo myndir af laginu ef þannig má að orðikomast. Eins og ég sé lagið fyrir mér í formi.
Seinasta myndin er svo af fyrsta verkefninu mínu í skólanum. lóða saman á rafmagnbretti gismó sem virkar eins og ljósastaur. slekkur á sér í byrtu og svoleiðis.
22.9.2008 | 19:34
Vá hvað það er langt síðan ég skrifaði einhvað hér síðast!
Sælt veri fólkið og langt síðan við sáumst seinast. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Karólinu undannfarið. Bæði búin að vera á þönum í skólunum okkar auk þess að reina að gera okkur heimili. Við erum búin að vera hér í þrjár vikur núna og líka bara bísna vel. Vorum þreitt eftir flutninga en ánægð.
. Karólína fékk að sjálfsögðu stærra herbegið, það er með hennar eigin svölum. Íbúðin er frekar lítil en nógu stór fyrir okkur. Útsínið úr stofunni er ekki af lakari endanum.
Ekki er nú svo að við gerum ekkert annað en fara í skóla og sofa. Það vill nú svo til að vinir okkar Ómar og Árdís eiga garð og í þeim garðinum vaxa epla og plómutré. Til þeirra er oft farið til að hitta dóttur þeirra, leika og tína epli. Við fengum fullann höldupoka af eplum sem við tíndum sjálf. Karólína þurfti að fara upp í stiga til að ná þeim efstu en það var allt í lagi, pabbi hélt honum á meðann.
Hjólreiðatúrarnir eru ófáir. Marga höfum við farið stutta en nu um helgina fórum við einn langann. Hann enduðum við í Katrinalund sem er allmeningstaður í skógarjaðrinum. þar er svo gott að vera að við ákváðum að koma aftur daginn eftir og grilla. Skelli ég hérna nokkrum myndum frá deginum og svæðinu
Ekki er Sonderborg stór borg en þó á hún heimsmet. Stærta krukka í heimi
þessi krukka er í heimsmetabók Guinnes. man ekk hvað hún er stór enn yfir 1,5 tonn á þyngd.
Hér er margt að sjá. Niðri við höfn eru alskonar bátar, við félagarnir erum alltaf að leita að þessum eina og sanna bát fyrir Ómar. Valið stendu á milli þessa tvegja sem stendur. Ákveðinn sjarmi yfir þeim.
Báður glæsilegir enn sitt sínist hverjum. Við hjóluðum í gegnum hverfi ofarlega í bænum um helgina. Það var eins og koma í afintýraland. Hús með stráþaki og ekki eitt heldur heil gata af þeim. Skakkir gluggar og dúkulísu hurðir. Þarna væri gaman að búa.
Spurning hvernig það sé að slá þakið. heheheheheh
Nóg um það í bili
Bloggfærslur 22. september 2008
Um bloggið
Sigurgrímur Jónsson
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 810
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar