María Ísól

4633769540233 0 BG

María er að verða stór stelpa. Hérna er hún hjá Ingibjörgu frænku. Þær systur mínar hafa verið iðnar við að senda mér myndir. Við erum nú að vinna í heimferð svo það stittist vonandi í að ég sjái litlu prinsessuna. Undarlegt hvernig það er hægt að sakna einhvers sem maður hefur aldery að fullustu hitt. Oft sit ég á kvöldin, skoða myndirnar og ímynda mér hvernig sé að halda á henni, hvernig hún bregðist við þegar ég kítla hana, hvernig hláturinn sé og brosið. Fagnaðarfundur verður það, það er víst.

 

5014769540233 0 BG

Sakleisið í sinni fegurstu mynd. Hvernig er annað hægt en verða yfir sig ástfangin af svona kríli. Það má svo sannarlega segja að ég eigi góða og fallega fjölskildu með þær Karólínu mér við hlið og getur  ekki nokkur lifandi maður tekið það frá mér. Fátt er mikilvægara en að eiga góða fjölskildu, hún stendur saman sama hvað á gengur, einn fyrir alla og allir fyrir einn.

1939669540233 0 BG5132769540233 0 BGDSC00089

Ingibjörg frænka með Maríu á fæðingardeildinni að ég held. Sú stutta hefur stækkað mikið síðann þá, rýkur upp eins og blóm að vori. Er dugleg að borða og hafa ofan af fyrir mömmu sinni.

Sagt er að María sé farin að líkjast karólínu meir og meir, sérstaklega munnsvipurinn.  Dæmi hver fyrir sig, kanski ég fynni seinna mynd af Línu á svipuðum aldri til samanburðar.

Ég setti fyllt af nýjum myndum inní möppurnar Lillan og Nýtt. Endilega kíkið á það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Þetta er falleg feitabolla hjá þér Gimsi minn og vel skiljanlegt að þú bíðir óþreyjufullur eftir því að fá að finna litla kroppinn, knúsa hana og kyssa og gleyma þér í ungbarnalyktinni    

Birna Eik Benediktsdóttir, 25.9.2008 kl. 15:44

2 identicon

Til hamingju með nýja krílið þitt...vissi ekki af þessu.

Þú kemur sífellt á óvart, maðurinn með töfrafingurnar hehe

Sigga Sønderborg (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 15:51

3 identicon

Hún er ekkert smá yndisleg bróðir sæll, það er gott að hafa hana í fanginu og finna ylinn frá henni. Það verður gott að fá þig heim

Inga syss (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurgrímur Jónsson

Höfundur

Sigurgrímur Jónsson
Sigurgrímur Jónsson

Vísindamaður með krullað hár.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • DSC00147
  • DSC00149
  • DSC00150
  • DSC00148
  • DSC00145

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 493

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband